Velkomin í Verkfærakistu Vistræktarhönnunar!
Hér finnur þú verkfæri sem styðja þig í gegnum vistræktarhönnun. Hvert verkfæri er sýnt á ensku og einu af eftirfarandi tungumálum; íslensku, norsku, dönsku, sænsku, finnsku og eistnesku.
Verkfærakistan hjálpar þér í vegferðinni sem það er að hanna vistræktarverkefni. Hönnunarferlið GoSADIMET er notað til skipta verkfærakistunni gróflega upp í hluta og inniheldur verkfæri fyrir fyrstu fjóra hlutana af hönnunarferlinu (GoSAD) fyrir vistræktarhönnunina þína. Einnig er fjallað um grunngildi vistræktar, vistræktarmeginreglur og nokkur mismunandi hönnunarferli. Praktískar leiðbeiningar fyrir framkvæmd eru ekki innifaldar í verkfærakistunni, en þær upplýsingar er auðvelt að nálgast á öðrum stöðum.
Þér er velkomið að skoða þessa grunnútgáfu af verkfærakistunni á netinu en þú getur einnig vistað pdf sem þú getur prentað. Ef þú vilt vista pdf kemur upp beiðni um að ská þig á póstlista NPA, þá færð þú fréttir af því þegar það verða einhverjar fréttir varðandi verkfærakistuna. Við munum útbúa aðra útgáfu með 30+ fleiri kortum innan skamms. Ein leið til að skipuleggja útprentuð spil er að hafa þau í möppu, ansi gammeldags, en einfaldasta leiðin sem við höfum prufað til að halda spilunum í röð og reglu. 🙂
ÞAKKIR
Margir hafa tekið tekið þátt í að safna og útbúa þessi verkfæri. Sum verkfærin hafa verið aðlöguð að vistræktarhönnunarhugmyndafræði gegnum árin. Við erum þakklát að hafa aðgang að frábærum verkfærum sem m.a. Edward de Bono, McHarg, Ethan Roland, Gregory Landau, P.E.Yeoman. Auk þess eru hönnunarferillinn sem Looby Macnamara þróaði og meginreglurnar frá David Holmgren og Bill Mollison eru ómetanlegur stuðningur í vistræktarhönnun. Sum verkfærin eru svo algeng að við náðum ekki að finna upprunann. Við berum virðingu fyrir þeirri vinnu sem allt þetta góða fólk hefur lagt til. Í þessari verkfærakistu kynnum við og gerum aðgengileg fjölda verkfæra sem geta stutt okkur í að skapa réttlátari heim.
Verkfærakistan á Íslensku
Við bjóðum einnig upp á flettibók svo þú getir skoðað verkfærakistuna án þess að hlaða henni niður. Notaðu flýtileiðirnar á innihaldslýsingunni til að komast fljótt á verkfærið sem þú leitar eftir.
Design Toolbox in six Nordic languages:
The Creators of the Permaculture Design Toolbox
Nordplus Nordic Council of Ministers kindly supported the creation of the Permaculture Design Toolbox.
